Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1062
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar, dags. 27. apríl 2026, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa um matsskyldufyrirspurn unnin af VSÓ ráðgjöf, dags. í apríl 2026, vegna áforma Veitna um að bora allt að sjö vinnsluholur í Laugarnesi í Reykjavík; allt að fimm við Engjateig, eina í Lágmúla og eina í Bolholti. Fyrir eru borholur við Bolholt og Lágmúla en við Engjateig er í gildi deiliskipulag sem heimilar borun nýrra vinnsluhola. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2026, samþykkt.

Deiliskipulag
Laugarnes
Samþykkt 12.10.2000 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag