Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1068
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Veitna ohf. , dags. 20. apríl 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Vatnagarða, Eimskips. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að leggja allt að 132 kV jarðstreng í og við götur og gönguleiðir á borgarlandi, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagsviðs, dags. 30. júní 2026.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

Deiliskipulag
Deiliskipulag Sundahafnar
Samþykkt 20.05.1975 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag