Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24030337 með síðari breytingu USK24070193 og
USK26020198 þannig að staðsetningu á öruggum svæðum er breytt og texti um
brunavarnir uppfærður fyrir gistiheimili í flokki 2, teg b með alls 22 hótelíbúðum fyrir alls 72
gesti og 8 starfsmenn í húsi Mjólkursamsölunnar, mhl. 01 á lóð nr. 54 við Snorrabraut.
Erindi fylgir yfirlit breytinga samsett af uppfærðum aðaluppdráttum og aðaluppdráttum
samþykktum 17. mars 2026.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.