Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Mikaels Jóhanns Traustasonar, dags. 25. mars 2026, um framkvæmdaleyfi vegna vinnu við nýju Fossvogsbrúnna (Ölduna) sem kemur við flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar. Í framhaldi af brúarenda kemur nýr gatnagerðarleggur sem tengist inn á Nauthólsveg. Helstu framkvæmdir: jarðvegsskipti og fullnaðarfrágangur fyllinga undir götur og gangstéttar, endurnýjun/nýlagnir fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og snjóbræðslu, fullnaðarfrágangur steypuvirkja, malbikun gatna og gangstétta ásamt hellulögn, fullnaðarfrágangur gatnalýsingar, umferðarljósa, skilta og merkinga, samkvæmt uppdráttum Eflu, dags. 1. desember 2025, br. 20. febrúar 2026. Áhersla er lögð á lágmörkun áhrifa á umferð á framkvæmdatíma og gert ráð fyrir akstursleiðum í báðar áttir á Nauthólsvegi, sem verður kominn til framkvæmdar allan verktímann, m.a. með, bráðabirgðavegum, tímabundnum stígum og þverunum fyrir alla samgöngumáta. Áætlaður verktími er frá október 2026 til júní 2028. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2026.