Lögð fram umsókn
Veitna ohf.
, dags. 24. mars 2026, um framkvæmdaleyfi að Bústaðavegi 18 til að leggja foreinangraða hitaveitupípu, sem tengist milli inntaks stöðvarinnar og inn á tvær pípur í stokk sem liggur frá stöðinni. Gengið verður frá stokknum og stokksenda fyrir ofan dælustöðina með frárennslisröri í fráveitukerfi. Framhjáhlaupið tengist í stokk fyrir neðan dælustöð. Saga þarf hitaveitustokka og steypa svo aftur upp stokkenda til að fullgera framhjáhlaupið. Yfirborðsfrágangur verður með sama hætti og áður, engin útlitsbreyting verður á stokknum eða dælustöð. Áætlaður framkvæmdatími er frá 12. maí 2026 til ágústloka 2026, en yfirborðsfrágangur í september 2026. Einnig er lagt fram teikningasett Verkís. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2026.