Fyrirspurn
Lögð fram umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar, dags. 5. mars 2026, þar sem óskað er eftir umsögn Reykjavíkurborgar um Matsskyldufyrirspurn Stjörnueggja og VSÓ ráðgjafar, dags. í febrúar 2026, vegna uppbyggingu og rekstur uppeldishúss varpfugla í Sætúni II í Reykjavík. Á Sætúni II eru tvær byggingar, reistar kringum 1980 tengdar saman með tengigangi, samtals 1390 m2 . Ungauppeldi á varpfuglum til 16 vikna aldurs er í núverandi húsakosti og verður áfram. Til stendur að reisa eitt eldishús til viðbótar, um 800 m2 . Stækkun á húsakosti er til að sinna kröfum um breyttan aðbúnað og anna aukinni eftirspurn eftir eggjum í landinu. Núgildandi starfsleyfi fyrir Sætún II er fyrir allt að 40.000 fugla á hverjum tíma og verður ekki farið yfir þau mörk þrátt fyrir stækkun á húsakosti. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. apríl 2026.