Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1053
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskiplagi Álfheima 74, Glæsibæjar. Í breytingunni sem lögð er til felst að skipulagsmörk eru færð og samræmd nýju deiliskipulagi Suðurlandsbrautar. Breytingin tekur eingöngu til skipulagsmarka. Að öðru leyti haldast gildandi skilmálar óbreyttir, samkvæmt uppdr. VSB verkfræðistofu, dags. 25. febrúar 2026.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105290 → skrá.is
Hnitnúmer: 10091821
Síðasta markaðsverð
155.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 846 m² · 03.10.2024
Kaupskrá 9 eignir
155.000.000 kr. 03.10.2024
Atvinnuhúsnæði · 846 m² · bygg. 1970 · HMS
75.000.000 kr. 09.04.2024
Atvinnuhúsnæði · 132 m² · bygg. 1970 · HMS
31.000.000 kr. 13.09.2022
Atvinnuhúsnæði · 56 m² · bygg. 1970 · HMS
160.000.000 kr. 01.12.2021
Atvinnuhúsnæði · 275 m² · bygg. 1970 · HMS
25.000.000 kr. 24.04.2018
Atvinnuhúsnæði · 41 m² · bygg. 1970 · HMS
… og 4 eignir til viðbótar
Deiliskipulag
Álfheimar 74, Glæsibær
Samþykkt 27.03.2001 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag