Lögð fram umsagnarbeiðni Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 26. febrúar 2026, vegna umsóknar
Eyktar ehf.
um starfsleyfi fyrir móttöku á úrgangi og millilager á Vesturlandsvegi 200 (sjá bls. 11 í skýrslu um "grunnástand svæðis og aðgerðaráætlun" nákvæma staðsetningu á lóð við Vesturlandsveg 200). Fyrirhugað er að taka á móti menguðum úrgangi frá lóð Guðrúnartúns 4 en þar var starfrækt smurverkstæði í tugi ára. Um er að ræða olíumengaðan jarðveg skv. greiningu sýna. Sótt verður einnig um leyfi fyrir meðhöndlun úrgangs. Mengaði jarðvegurinn verður svo meðhöndlaður og mun lífrænt niðurbrotsferli brjóta niður olíumengunina á 6-24 mánuðum. Gert er ráð fyrir að magn úrgangs verði í a.m.k. 2000m3. Einnig er lögð fram skýrsla um grunnástand svæðis og aðgerðaráætlun, dags. í febrúar 2026. Óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa um hvort starfsemin samræmist skipulagi. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. mars 2026.