Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 378
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 25. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602028, dags. 24. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingafulltrúa í Reykjavík frá 26. janúar 2026 um byggingarleyfisskyldu LED-skilta í gluggum á Hafnarstræti 20 og um að slökkt verði á skjánum á meðan byggingarleyfi liggur ekki fyrir. Einnig er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 13. apríl 2026. Úrskurðarorð: Auglýsingaskjáir innan við glugga í húsinu að Hafnarstræti 20 í Reykjavík eru ekki háðir byggingarleyfi samkvæmt 9. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki.