Tillaga um umferðaröryggisaðgerðir 2026
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 17 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 373
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna- og borgarhönnunar dags. 26. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að veita heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna eftirfarandi umferðaröryggisaðgerða: a. Gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar: Gönguþveranir upphækkaðar í hæð gangstétta í framhjáhlaupum, b. Reykjavegur við Hofteig og Kirkjuteig: Hraðalækkandi aðgerðir og bætt öryggi fyrir gangandi, c. Úlfarsbraut-Urðarbrunnur: Hraðalækkandi aðgerð til að halda niðri hraða framan við skóla og við gangbraut, d. Holtavegur við Efstasund: Gerð upphækkaðrar gönguþverunnar, e. Snekkjuvogur við Eikjuvog: Aðgerð á gatnamótum til að tryggja sjónlengdir og örugga gönguþverun, f. Flúðasel: Kreppa beygju svo bílstjórar þurfi að hægja betur á sér við fjölfarna gönguleið skólabarna, g. Dyngjuvegur við Langholtsveg: Eyra breikkað til að bæta sýn á gönguþverun og í gatnamótum. Eitt bílastæði fjarlægt vegna aðgerðanna, h. Eskitorg við Litlahlíð: Upphækkuð gönguþverun og bogar krepptir til að lækka aksturshraða yfir þverunina, i. Lambhagavegur við Mímisbrunn: Hraðalækkandi aðgerð til að tryggja umferðaröryggi í gatnamótunum, j. Múlar: i. Síðumúli 10 og 11 Upphækkuð gangbraut og lýsing, ii. Selmúli/Ármúli: Upphækkuð gangbraut og lýsing á Selmúla á gatnamótum við Ármúla, iii. Ármúli 31 og 40: Upphækkuð gangbraut, lýsing og miðeyja, iv. Síðumúli/Ármúli/Vegmúli : Miðeyja á Síðumúlatengingunni á gatnamótunum, v. Ármúli/Síðumúli: Bæta lausn fyrir gangandi á borgarlandi milli Ármúla 30 og Síðumúla 15.
Svar

Samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun Kjartans Magnússonar, óháðs fulltrúa:
Umræddar umferðaröryggisaðgerðir eiga allar rétt á sér. Ánægjulegt er að samkvæmt tillögunni er fyrirhugað að ráðast í aðgerðir í því skyni að auka umferðaröryggi á Hamrastekk á árinu. Þannig kemst til framkvæmda tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um málið frá liðnu hausti. Breytingin er tvímælalaust til bóta en undirritaður hefði þó kosið að formleg gangbrautarmerking yrði sett upp á umræddum stað og lýsing bætt.