Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn ASK Arkitekta ehf., dags. 3. febrúar 2026, ásamt bréfi, dags. 3. febrúar 2026, um hvort heimilt geti verið að leyfa sölu bílastæða sem sjálfstæðra eigna á lóð nr. 2 við Haukahlíð, sem valkost eða viðbót við leigufyrirkomulag, án þess að ganga gegn markmiðum deiliskipulags og samgöngumats. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2026.