Lögð fram umsókn Veitna ehf., dags. 22. janúar 2026, um framkvæmdaleyfi vegna lagningu nýrrar stofnlagnar vatnsveitu Veitna á um 800 metra löngum kafla á Álfsnesi vestan við Víðines. Áætlaður framkvæmdatími er frá 2. apríl 2026 til 31. júlí 2026. Einnig er lagt fram teikningasett Verkís, dags. júlí 2025. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. febrúar 2024.
Svar
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 24. febrúar 2026. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025.