Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 dögum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1050
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Veitna ohf. , dags. 14. janúar 2025, um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar á tæplega 80 ára gamalli stofnlögn vatnsveitunnar sem liggur norðan megin við Vatnsveituveg (Elliðaármegin). Fyrirhugað er að leggja DN900 ductile lögn en hún er 90cm í þvermál. Framkvæmdin hefst á því að tré á áhrifasvæði nýrrar lagnaleiðar verða felld ásamt því að hliðra til stórum grjótum í lagnaleiðinni. Að því loknu verður lagnaskurður grafinn og uppgrafið efni geymt eins og kostur er á svæðinu. Sandað verður undir kaldavatnslögn og hún lögð í skurðinn. Að því loknu verður sandað yfir og uppgrafinn jarðvegur endurnýttur til að fylla ofan á lögn. Gróðurþekja verður endurnýtt eins og kostur er til að leggja ofan á skurðsár. Meðfram Vatnsveituvegi er skurður sem drenar svæðið og verður hann endurmótaður öðru hvoru megin við nýja vatnsveitulögn. Framkvæmdatími júní til desember 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. febrúar 2026.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 24. febrúar 2026.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025.

Deiliskipulag
Deiliskipulag athafnasvæðis hestamanna í Elliðaárdal, svæði Fáks í Víðidal
Samþykkt 22.09.2005 · Deiliskipulag. Nýtt DSK