Síðast Synjað á fundi fyrir 3 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1061
Synjað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Páls V. Bjarnasonar, dags. 12. janúar 2026, ásamt bréfi Park teiknistofu, dags. 12. janúar 2026, um breytingu á deiliskipulagi Umferðarmiðstöðvarreits vegna lóðarinnar nr. 10 við Vatnsmýrarveg, sem felst í að setja upp rafrænt skilti í stað núverandi skiltis, samkvæmt fyrirspurnaruppdr. Park, dags. 9. október 2025. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2026.
Svar

Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2026.

Deiliskipulag
DSK stgr. 1.622, Umferðamiðstöð, Hringbraut - Njarðargata, Reykjavík
Samþykkt 28.11.1995 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag