Síðast Samþykkt á fundi í gær.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1055
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Jóns Davíðs Ásgeirssonar , dags. 5. janúar 2026, um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 151 við  Hólmsheiðarveg (Landsnet) Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun á byggingarreit 1 vegna staðsetningar á fyrirhuguðu geymsluhúsnæði á lóð, samkvæmt uppdr. JODA Arkitekta, 5. janúar 2026.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.