Sótt er um heimild til að rífa frístundahús, mhl.02, á jörðinni Nesvík á Kjalarnesi.
Magn niðurrifs:
Mhl.02: 223.2 ferm., 802.4 rúmm.
Erindi fylgir skýrsla um meðhöndlun og förgun niðurrifsúrgangs dags. 19. nóvember 2025.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.