Úlfarsárdalur - Breyting á deiliskipulagi - Iðunnarbrunnur 13
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 viku síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1049
17. febrúar, 2026
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Baldurs Ólafs Svavarssonar, dags. 17. nóvember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 13 við Iðunnarbrunn. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að nýta kjallara undir húsinu og tilsvarandi auknu byggingarmagni. Húsið verður áfram tvíbýlishús eins og heimilt er samkvæmt gildandi deiliskipulagi, en kjallarinn verður að hluta til séreign íbúðar jarðhæðar og að hluta til séreignageymslur beggja íbúða hússins. Við breytinguna eykst byggingarmagn lóðar og nýtingarhlutfall hækkar. Fallið er frá kröfu um að inngangur að efri hæð verði um forstofu á neðri hæð og um innanhússstiga og heimilt verður að inngangur að efri hæð verði um opna yfirbyggða tröppu utanhúss, samkvæmt uppdr. Inni Úti arkitekta, dags. 17. nóvember 2025. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. janúar 2026 til og með 13. febrúar 2026. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.