Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu, dags. 4. nóvember 2025, um framkvæmdaleyfi fyrir gerð gatna og veitukerfa fyrir nýtt íbúðar- og þjónustukerfi á Ártúnshöfða, sem felst í upprifi og förgun á núverandi yfirborði, losun klappar og lagnaskurða, jarðvegsskipti, gerð stoðveggja, lagningu fráveitu-, vatns- og hitaveitulagna, ásamt lagningu raf- og ljósleiðaralagna. Einnig gerð fyllinga og burðarlaga í götur, stíga og stéttar, ásamt uppsetningu götulýsingar og malbikunar, samkvæmt uppdr. Eflu, dags. 29. mars 2023 og 31. mars 2023. Einnig er lagt fram yfirlitskort mengunarrannsókna, dags. 9. mars 2023, síðast br. 16. apríl 2024. Verkið skiptist í fimm áfanga: Lok áfanga 1 er 15. mars 2026, áfanga 2 er 15. febrúar 2026, áfanga 3 er 15. júlí 2026, áfanga 4 er 15. ágúst 2027 og lok áfanga 5 er 15. september 2027.