Grafarholt, svæði 1 - norðurhluti - Breyting á deiliskipulagi - Maríubaugur 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1033
21. október, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breyting á deiliskipulagi fyrir Grafarholt, svæði 1 - norðurhluta, sem samþykkt var í borgarráði 20. júlí 1999, vegna lóðarinnar nr. 3 við Maríubaug, leikskólalóð. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreindur er nýr takmarkaður byggingarreitur með auknu byggingarmagni til að koma fyrir færanlegum kennslustofum á lóð leikskólans ásamt heimild fyrir öðrum byggingum sem gætu risið fyrir leikskólann, svo sem hjólaskýli, samkvæmt uppdráttum Tendra arkitektúr dags. 20. október 2025.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar), sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar