Fyrirspurn
Fram fer kynning á endurgerð bílastæða fyrir hreyfihamlaða.
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi flokks fólksins þakkar fyrir góða kynningu á mikilvægu verkefni. Í framhaldi vill fulltrúinn leggja áherslu á að merking þessara stæða í borgarlandinu sé með eins og góðum og skilmerkilegum hætti og hægt er. Þess vegna telur fulltrúinn það mikilvægt að notaður sé blár litur í stæðin, þar sem því verður við komið - til þess m.a. að auka enn betur á sýnileika þeirra í öllum veðrum.