Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. ágúst 2025 ásamt kæru nr. 123/2025, dags. 4. ágúst 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar frá 4. júlí 2025 um synjun á kröfum kærenda um afturköllun á byggingarleyfi fyrir mannvirkið við Álfabakka 2A og um stöðvun frekari framkvæmda við mannvirkið, að það verði fjarlægt og allt jarðrask afmáð á grundvelli 55. gr. laga um mannvirki. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkur dags. 10. september 2025. Jafnframt er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 21. ágúst 2025. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða.