Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 349
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á lagningu göngu- og hjólastígs við Árskóga 1-7. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: Göngustígur við Árskóga 1-7 hefur verið á skipulagi síðan 2009. Félag eldri borgara hafði sótt um stækkun á húsinu að endimörkum byggingarreitsins eftir það. Ljóst var því allan tímann að lega stígsins yrði mun nær húsinu en ætlað var í fyrstu. Þegar framkvæmdir hófust við lagningu stígsins núna í sumar 2025 urðu íbúar ekki sáttir. í kjölfarið var ákveðið að stöðva framkvæmdir og funda með íbúum og leita allra leiða til þess að ná sátt í málinu. Það tókst með lausn sem allir gátu sætt sig við - án þess að það myndi bitna á þeim öryggisþáttum sem þarna þurfa að vera til staðar eins og greiður akstur neyðarbíla þegar á þarf að halda. Eins og fjallað er ítarlega um í kynningu var m.a. um að ræða lækkun stígs um 40 cm. Einnig var stoðveggur styttur um 8 metra og lækkaður til samræmis við lækkun stígsins. Það er mikilvægt og gott að staldrað hafi verið við til að gera úrbætur og mæta sjónarmiðum íbúa.
109 Reykjavík
Landnúmer: 224212 → skrá.is
Hnitnúmer: 10129681
Síðasta markaðsverð
50.000.000 kr.
Sérbýli · 93 m² · 02.05.2025
Kaupskrá 21 eignir
50.000.000 kr. 02.05.2025
Sérbýli · 93 m² · 2 herb. · bygg. 2006 · HMS
49.500.000 kr. 01.04.2025
Sérbýli · 93 m² · 2 herb. · bygg. 2006 · HMS
41.000.000 kr. 07.11.2022
Sérbýli · 93 m² · 2 herb. · bygg. 2006 · HMS
41.000.000 kr. 13.04.2022
Sérbýli · 93 m² · 2 herb. · bygg. 2006 · HMS
74.900.000 kr. 17.12.2019
Fjölbýli · 141 m² · 2 herb. · bygg. 2019 · HMS
… og 16 eignir til viðbótar
Deiliskipulag
Suður-Mjódd
Samþykkt 22.01.2009 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag