Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi, útliti og notkun iðnaðarhúss, mhl.02, í verslunar-
og lagerhús á lóð nr. 4 við Skútuvog.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 26. maí 2025, greinargerð brunahönnunar slf. um
brunavarnir dags. 19. maí 2025 og yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 11. október 2022.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Þinglýst lóðaskiptayfirlýsing er fyrir á lóð. Það þarf að gera nýja þar sem hlutdeild fasteigna í lóð er að breytast og fella þarf núverandi yfirlýsingu úr gildi.