Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 343
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á fyrirliggjandi breytingum á umhverfis- og skipulagssviði sem samþykkt var í borgarráði, sbr. 1. liður fundargerðar borgarráðs dags. 15. maí 2025. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: Tímabærar breytingar verða nú gerðar á skipulagsferlum borgarinnar. Þeim er ætlað að bæta þjónustuviðmót og verklag og auka gæði, skilvirkni og gagnsæi í húsnæðisuppbyggingu í borginni með því meðal annars að sameina embætti skipulags- og byggingafulltrúa. Allur ferillinn verður skilvirkari, allt frá skipulagsgerð, sölu og þróun lóða og til samningsgerðar og uppbyggingar. Samhliða er verið að og taka enn betur utan um eignir borgarinnar og viðhald með því að sameina á einum stað viðhalds- og eignaumsýslu. Um leið er verið að skerpa á eftirliti og aðhaldi og verður innkaupastýring og samningastjórnun efld og kostnaðareftirlit með framkvæmdum hert. Allar þessar breytingar miða að því að efla þjónustu, stytta boðleiðir, flýta húsnæðisuppbyggingu en tryggja um leið gæðin. Þá fela þær einnig í sér mikil samlegðaráhrif og fjárhagslegt hagræði til skemmri og lengri tíma.