Lögð fram umsókn
Yrki arkitekta ehf.
, dags. 12. maí 2025, um breytingu á deiliskipulagi Gufuness, 1. áfanga, á svæði E, Hafnarsvæði. Breytingin byggir á vinningstillögu úr alþjóðlegri samkeppni á vegum C40 Reinventing Cities. Samkvæmt vinningstillögunni er gert ráð fyrir tveggja hæða byggingu á höfninni með samgöngumiðstöð fyrir bátastrætó, heilsulind, sundlaug og veitingastað. Við höfnina var gert ráð fyrir 5-6 hæða byggingu með 19 smáíbúðum og leikskóla á jarðhæð, en eftir viðræður við skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, virðist ljóst að það yrði erfitt að koma leikskóla við vegna skorts á útisvæði. Þá er búið að endurskoða hæð hússins en heildarbyggingarmagni haldið óbreytt. Varðandi smáíbúðirnar hefur verið horfið frá þeirri hugmynd vegna aukins umfangs kvikmyndavers á aðliggjandi lóð og er þess í stað gert ráð fyrir atvinnustarfsemi með áherslu á heilsu- og gististarfsemi, samkvæmt uppdr.
Yrki arkitekta ehf.
, dags. 30. apríl 2025.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undirgjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1381/2024.