Hlemmur og nágrenni og Hlemmur, umferðarskipulag - Breyting á deiliskipulagi - Laugavegur 109
Laugaveg 109
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1010
8. maí, 2025
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn ARGOS ehf. , dags. 29. apríl 2025, ásamt bréfi, dags. 23. apríl 2025, um breytingu á deiliskipulagi Hlemms vegna lóðarinnar nr. 109 við Laugaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst tilfærsla á sorpskýli í borgarlandi sem tilheyrir Laugavegi 109 (Norðurpóli). Sorpskýlið við norðvesturhorn lóðar er fært að austurhlið lóðarinnar, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta, dags. 7. maí 2025.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar), sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr.1381/2024, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Svar