Garðabær - Stígakerfi - Breyting á 4. kafla í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 - Umsagnarbeiðni
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1008
10. apríl, 2025
Annað
‹ 39
40
Fyrirspurn
Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar, dags. 3. apríl 2025, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa um tillögu, dags. 13. mars 2025, að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Tillagan gerir ráð fyrir því að gerð sé breyting á á ákvæðum sem ná til stígakerfa í 4. kafla aðalskipulags. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar og er áætluninni ætlað að vera til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Markmiðið er að til verði stefna um vistvænar samgöngur og uppbyggingu stígakerfisins í þágu útivistar og lýðheilsu og umhverfisverndar, með öryggi að leiðarljósi.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til meðferðar verkefnastjóra.