Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 335
Annað
Fyrirspurn
Aflétt úr trúnaðarbók umhverfis- og skipulagsráðs kynning á drögum að aðalskipulagi Reykjavíkur 2024, íbúðaruppbyggingu í grónum hverfum, sbr. 3. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 5. febrúar 2025. Frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs 5. febrúar 2025:
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar:
Vegna uppbyggingaráforma í Grafarvogi er verið að vinna að aðalskipulagsbreytingu ásamt deiliskipulagsvinnu. Þær tillögur að breytingum fylgja einnig með gögnunum. Meirihluti Framsóknar, Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar fagnar nýjum deiliskipulagstillögum varðandi uppbyggingu í Grafarvogi. Fyrirhuguðu skipulagi hefur verið breytt og dregið úr byggingarmagni til að koma móts við fjölda ábendinga sem bárust eftir kynningu í haust. Fulltrúar meirihlutans vona að með breyttu skipulagi náist sátt um uppbygginguna.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítreka enn og aftur þá afstöðu sína að óviðunandi sé að svokallað húsnæðisátak í Grafarvogi verði þvingað fram á forsendum ofurþéttingarstefnu vinstri flokkanna. Slíkar hugmyndir þarf að útfæra í góðri sátt og með raunverulegu samráði við íbúa viðkomandi hverfa. Varðandi Grafarvog þarf t.d. að taka ríkt tillit til staðaranda hverfisins og hagsmuna núverandi íbúa, t.d. með því að ganga ekki á græn svæði sem mörg hver eru rótgróin og ein helsta ástæða þess að fólk hefur valið hverfið til búsetu. Ljóst er að margir þeir þéttingarreitir, sem borgarstjóri hefur kynnt að séu til skoðunar í Grafarvogi, ganga gegn þessum sjónarmiðum og koma því ekki til greina að mati borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Í ýmsum tilvikum er gert ráð fyrir miklum þéttleika byggðar og of fáum bílastæðum. Slíkt skipulag hefði óhjákvæmilega hafa áhrif á lífsgæði þeirra íbúa, sem fyrir eru, til hins verra. Samráð við Grafarvogsbúa hefur verið takmarkað í málinu og tillögurnar mætt mikilli andstöðu. Æskilegt væri því að tillögurnar yrðu dregnar til baka í heild sinni en þess gætt í framtíðinni að auka samráð við íbúa hverfisins varðandi viðamiklar breytingar á skipulagi.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Fulltrúa Flokks fólksins sýnist að í kynningu á Aðalskipulagi Reykjavíkur, virðast skipulagsyfirvöld gera meira til þess að hlusta á íbúa en áður. Það að taka meira tillit til athugasemda þeirra sem á þeim svæðum búa sem um ræðir, skiptir öllu máli ef sátt á að nást um þá miklu uppbyggingu og þéttingu byggðar sem á eftir að verða í Reykjavík á næstu árum og áratugum. Í húsnæðisáætlana hluta aðalskipulagsins er minnst á fjölgun óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga. Flokkur fólksins telur að það sé löngu tímabært að óhagnaðardrifnum húsnæðisfélögum verði fjölgað. Vitað er að mikil þörf er á slíku húsnæði í borginni. Í raun má segja að áherslan undanfarin ár virðist mest hafa snúist um þéttingu byggðar á dýrustum lóðum borgarinnar í miðbænum. Slíkt húsnæði leysir á engan hátt það vandamál sem fólgið er í skorti á húsnæði á viðráðanlegu verði fyrir fyrstu kaupendur og ungt fólk í Reykjavík. Vonar fulltrúi Flokks fólksins að sá húsnæðissáttmáli sem Reykjavíkurborg gerði við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Innviðaráðuneytið varðandi uppbyggingu 16 þúsund íbúða á 10 árum, standist. Er það skoðun fulltrúans að slík uppbygging þurfi að snúast um mun fjölbreyttara húsnæðisform en það sem átt hefur sér stað undanfarin ár miðsvæðis í borginni.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins mótmæla harðlega þeirri málsmeðferð að bókanir þeirra um þéttingaráform í Grafarvogi hafi ekki verið færðar með almennum og hefðbundnum hætti í fundargerðabók umhverfis- og skipulagsráðs. Í umræddum bókunum kom einungis fram almenn afstaða til þess málefnis sem rætt var á fundum umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur sl. en ekki fjallað um nein trúnaðarmál. Að tefja birtingu umræddra bókana, með því að trúnaðarmerkja þær, stenst ekki skoðun.