Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 332
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands: Skilgreindur verði sérstaklega í skipulagi jaðar skipulagssvæða sem ætluð eru fyrir atvinnustarfsemi, þar sem hann sem er í beinni snertingu við íbúðabyggð eða viðkvæma almannaþjónustu, svo sem stofnanir þar sem börn, veikt fólk eða á annan hátt viðkvæmir hópar dveljast í lengri tíma. Skipulagsmörk atvinnu- eða athafnatengdra skipulagssvæða við slíka viðkvæma byggð yrðu flögguð sem “við íbúðabyggð” þar sem skipulagssvæðin snertast. Allar atvinnulóðir upp við skipulagsmörk “við íbúðabyggð” tækju við þeirri skilgreiningu og hertum skilmálum um að starfsemi eða uppbygging valdi ekki verulega skertum lífsgæðum, hættu, mengun eða ónæði fyrir íbúa og viðkvæma hópa á aðliggjandi lóðum, umfram þá skilmála sem giltu skipulagssvæðið fyrir. Á slíkum lóðum þurfi í skipulagsferlinu að fá samþykki kjörinna fulltrúa áður en skrifað er undir byggingarleyfi eða starfsleyfi, og þurfi forhönnun að liggja fyrir og/eða áform um starfsemi á því stigi. Greinargerð fylgir tillögu.
Svar

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, deildarstjóra aðalskipulags.