Laugavegur 139
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1217
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingu sem meðal annars fela í sér að gerðar hafa verið svalir á norðuhlið 2. hæðar, tröppur gerðar á bakhlið og innréttaðar 5 íbúðir í íbúðarhúsi á lóð nr. 139 við Laugarveg. Breytingar eru byggðar á aðalteikningum samþykktum með erindi BN044004 þann 17. apríl 2012 sem fallið er úr gildi þar sem ekki var gefið út byggingarleyfi. Erindi afgreiðist samhliða erindi USK23040234. Erindi fylgir skýrsla um húsaskoðun dags. 28. maí 2025, greinargerð hönnuðar dags. 11. desember 2024 og yfirlit breytinga á afriti aðaluppdrátta samþykktum 29. október 2002.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis.
Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á
verkið né ábyrgðaraðilar.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102858 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018250
Síðasta markaðsverð
320.000.000 kr.
Sérbýli · 505 m² · 04.10.2023
Kaupskrá 1 eign
320.000.000 kr. 04.10.2023
Sérbýli · 505 m² · 19 herb. · bygg. 1942 · HMS
Deiliskipulag
Deiliskipulag stgr. 1.240, Hlemmur og nágrenni og Hlemmur, umferðarskipulag
Samþykkt 19.03.2020 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag