Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn þakkar fyrir umfangsmikla vinnu við ECT-rannsóknarverkefnið og telur niðurstöður þess mikilvægt innlegg í áframhaldandi stefnumótun Reykjavíkurborgar í bílastæða- og samgöngumálum. Verkefnið dregur skýrt fram að tengsl bílastæða, ferðavenja og uppbyggingar eru margþætt og að ólíkar lausnir geta hentað eftir staðsetningu og aðstæðum. Framboð, staðsetning og útfærsla bílastæða hefur áhrif á ferðavenjur, landnotkun, uppbyggingu og kolefnisspor og því mikilvægt að horfa heildstætt á þessa þætti. Sérstaka athygli vekja niðurstöður viðtala við fasteignaþróunaraðila og aðra fagaðila á fasteignamarkaði. Þar kemur skýrt fram að aðgengi að bílastæðum er enn talið skipta verulegu máli fyrir söluvænleika nýrra íbúða. Jafnframt kemur fram gagnrýni á að bílastæðaviðmið borgarinnar hafi verið of ströng miðað við núverandi bílaeign og framboð annarra raunhæfra samgöngukosta. Á sama tíma sýna niðurstöðurnar að staðsetning eða aðgengi að bílastæðum ein og sér tryggir ekki breytingar á ferðavenjum. Aðgengi að öruggum göngu- og hjólastígum ásamt góðum almenningssamgöngum er lykilforsenda þess að fólk breyti ferðamáta sínum. Meirihlutinn telur niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að Reykjavíkurborg beiti sveigjanlegri nálgun við ákvörðun bílastæða í nýrri uppbyggingu.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir góða kynningu. Í henni komu fram mikilvæg gögn sem nýtast við að taka skynsamlegar ákvarðanir um samgöngur í Reykjavík. Sérstaklega var gagnlegt að sjá hvernig aðrar borgir sem einnig liggja mjög norðarlega í Evrópu hafa náð að fækka bílferðum með því að bæta göngu- og hjólaleiðir og almenningssamgöngur. Áherslan þar hefur verið á að fólk noti aðra samgöngumáta en bílinn í daglegum ferðum sínum til og frá vinnu, bæði með stuðningi við starfsfólk sem velur aðra ferðamáta en bílinn og með gjaldtöku fyrir bílastæði við vinnustaði. Kynningin undirstrikaði að samgöngur framtíðarinnar snúast um að skapa raunverulegt val með öruggum göngu- og hjólaleiðum, öflugum almenningssamgöngum og fjölbreyttum bílastæðalausnum. Þetta er lærdómur sem gæti nýst til að draga úr umferðaröngþveiti á álagstímum í Reykjavík. Við leggjum jafnframt áherslu á að borgin taki áfram þátt í evrópskum samstarfsverkefnum af þessu tagi. Verkefnið er að fullu fjármagnað úr erlendum sjóðum og færir borginni verðmætar rannsóknir og þekkingu sem nýtast við stefnumótun og upplýsta ákvarðanatöku.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Reykjavíkurborg hefur sett sér metnaðarfull og nauðsynleg markmið um kolefnishlutleysi og þarf að vinna að þeim á öllum sviðum borgarsamfélagsins. Hins vegar kemur stærsta kolefnisspor borgarinnar frá samgöngum og það er mikið verk fyrir höndum að ná því niður. Það er því gríðarlega mikilvægt að nýta sér þau frábæru rannsóknargögn sem kynnt voru ráðinu í dag til heildstæðrar stefnumótunar um hvernig við breytum ferðavenjum, skipuleggjum sjálfbæra og umhverfisvæna byggð og aukum hlutdeild virkra ferðamáta enn frekar. Nú nýlega hafa Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn beinlínis lagt fram tillögur og samþykkt þær sem vinna gegn loftslagsmarkmiðum Reykjavíkur og Aðalskipulagi. Tillögurnar munu leiða af sér aukna bílaumferð með tilheyrandi öngþveiti og mengun í borginni. Slíkar ákvarðanir eru ekki í þágu samfélagsins, framtíðar kynslóða og umhverfisins og munu draga dilk á eftir sér. Það verður torsótt að vinda ofan af vondum ákvörðunum þessara flokka fái þær að koma til framkvæmda en það er ekki of seint að endurskoða þær. Borgarfulltrúi Vinstrisins hvetur fulltrúa D,C og B til þess.