Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 327
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á jólunum í borginni. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Eftir því er tekið að “jólaborgin” er að stærstu leyti í miðbænum og miðsvæðis. Flokkur fólksins hefur áhyggjur að aðgengi að þessum svæðum t.d. aðgengi fyrir þá sem ekki búa í nágrenni við miðbæinn og geta gengið til að skoða dýrðina svo ekki sé minnst á fatlað fólk Fólk í efri byggðum barnafólk sem á ekki annan kost en að nota bílinn á erfitt með að fá stæði í kringum þessi torg og götur sem skreyta á eða sem setja á upp jólamarkaði - viðburði. Þetta er bagalegt ekki síst vegna barnanna utan miðborgar sem mörg hver munu aldrei njóta “jólaborgarinnar”. Af hverju er ekki splæst á jólamarkað í Breiðholti, Árbæ, Grafarhotli og Úlfarsárdal og Grafarvogi sem dæmi? Af hverju miðast ávallt allt sem skemmtilegt er við miðbæinn sem aldrei hefur verið eins erfitt að nálgast og nú? Þetta eru vangaveltur sem fulltrúi Flokks fólksins telur sig knúinn til að varpa fram hér enda um augljóst misrétti að ræða eftir því hvar fólk býr í borginni.