Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að bæta frágang á loftum í kjallara með tilliti til hljóðvistar og eldvarna og
breyta innra skipulagi þannig að bókasafn og lesstofur eru innréttaðar í kjallara og fyrrum bókasafni
er breytt í kennslustofur í húsi Kvennaskólans á lóð nr. 9 við Fríkirkjuveg.
Erindi fylgir greinargerð frá hönnuði dags. 7. nóvember 2024 og minnisblað hljóðstofu Myrru um
hljóðvist dags. 21. júní 2024 og yfirlit breytinga á afriti af aðaluppdrætti samþykktum 5. júlí 2011.