Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um hólma í ofanvatnstjörn norðan við Breiðholtsbraut, sbr. 31. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 25. september 2024. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 9. október 2024.
Tillagan er felld með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Tillagan er felld með hliðsjón af umsögn sviðsins.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að hólmar yrðu gerðir í ofnavatnstjörn norðan við Breiðholtsbraut. Tillagan er felld sem er miður. Umsögn er neikvæð. Í henni segir: að ekki sé heppilegt að laða fuglalíf sérstaklega að svæðum sem eru hönnuð til þess að taka á móti mengun úr byggðu umhverfi og að hólmi minnki vatnið, Í ljósi ofangreinds er mælt með því að tillagan verði felld. Fulltrúi Flokks fólksins er ekki sáttur við þessi rök enda ekki góð rök. Ekkert er því til fyrirstöðu að stækka tjörn sem nemur því rúmmáli sem hólminn tekur og eru því rök um að hann dragi úr virkni settjarna haldlítil. Þetta er spurning um hönnun mannvirkja og líffræðilega hugsun, en ekki bara verkfræðilega. Margar fuglategundir synda ekki, svo sem allar spörfuglategundir, og munu því ekki ,,mengast” af vatninu, en í hólma finna þær frið fyrir t.d. köttum og geta alið upp unga. Það er ekki í þágu fuglalífs að halda því frá tjörnum. Þvert á móti. Skynsamlegt væri fyrir umhverfis- og skipulagsyfirvöld að endurskoða þessa umsögn sína og leita frekari ráðgjafar.