Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 9 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 342
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs um 1. lotu Borgarlínu, Ártún – Fossvogur, Rammahluti Aðalskipulags Reykjavíkur 2040, dags. október 2025, uppfært í maí 2025 eftir kynningartíma. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn dags. 8. maí 2025. Lagt er til að tillagan verði samþykkt sbr. umsögn.
Svar

Samþykkt sbr. 1. og 2. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn deildarstjóra aðalskipulags dags. 8. maí 2025 með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúa Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði á móti tillögunni.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna:
Samþykkt á rammahluta Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 um fyrstu lotu Borgarlínunnar, frá Ártúni að Fossvogi, er mikilvægur áfangi í því að hefja framkvæmdir. Mikið samráð hefur átt sér stað í skipulagsferlinu og mun áfram eiga sér stað þegar deiliskipulagsvinna á hverjum kafla hefst. Það samráð er gífurlega mikilvægt í jafn stóru og viðamiklu verkefni og Borgarlína er. Við þann hluta skipulags sem snýr að rammahlutanum komu umsagnir frá 35 aðilum og 21 til viðbótar við umhverfismatsskýrsluna sem kynnt var samhliða. Er öllum þeim sem skiluðu inn umsögn þakkað fyrir sýndan áhuga á verkefninu og fjölbreyttar og gagnlegar athugasemdir. Mikilvægt er að í áframhaldandi vinnslu verkefnisins verði áfram virkt samtal við íbúa og hagsmunaaðila.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja almenningssamgöngur en telja ekki rétt að vegið verði að öðrum fararmátum eins og ætlunin virðist vera með fyrsta áfanga borgarlínu. Tillagan felur í sér að þrengt verður með almennri bifreiðaumferð með ýmsum hætti. Til að koma fyrir sérakreinum borgarlínu á að fækka akreinum fyrir bílaumferð á Suðurlandsbraut úr fjórum akreinum í tvær á stærstum hluta Suðurlandsbrautar, sem og á Laugavegi frá Kringlumýrarbraut að Katrínartúni. Að auki yrði mörgum götum lokað fyrir bílaumferð að miklu eða öllu leyti sem myndi auka umferðartafir í kerfinu. Fyrirtæki við Suðurlandsbraut og Lágmúla láta í ljós áhyggjur sínar vegna fækkunar akreina og bílastæða. Fríkirkjuvegur, Lækjargata og Hverfisgata gegna mikilvægu hlutverki fyrir miðborgina og tengingu hennar við önnur hverfi. Með slíkum breytingum verður gert erfiðara en áður að sækja atvinnu eða þjónustu þar. Bílaumferðin hverfur ekki með slíkum umferðartakmörkunum heldur leita í auknum mæli inn í nærliggjandi íbúahverfi. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja stórbæta almenningssamgöngur með því að ráðast strax í miklar endurbætur á núverandi kerfi í stað þess að bíða eftir borgarlínu til ársins 2032. Hægt væri að stórbæta núverandi kerfi strætisvagna fyrir lítinn hluta þeirrar upphæðar sem borgarlína á að kosta með úrbótum á leiðakerfi, lagningu forgangsakreina og auknum forgangi vagna á umferðarljósum.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Með afgreiðslu 1. lotu í legu Borgarlínu frá Ártúni til Fossvogsbrúar er miklum áfanga náð í framgangi samgöngusáttmálans. Framsókn vill minna á mikilvægi þess að áframhaldandi skipulagsvinna verði gerð í sem mestri sátt við hagsmuni gangandi, hjólandi og akandi umferðar.