Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 323
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 2. ágúst 2024 ásamt kæru nr. 83/2024, dags. 1. ágúst 2024, þar sem kærð er ákvörðun byggingaryfirvalda í Reykjavík vegna umsóknar kæranda um byggingu bílskúrs á eignarlóð hans að Stýrimannastíg 14 í Reykjavík. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 2. september 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 25. september 2024. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 9. júlí 2024 um að synja umsókn um byggingarleyfi fyrir tvöfaldri bílageymslu á lóð nr. 14 við Stýrimannastíg, Reykjavík.