Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta, endurgera og byggja ofaná mhl. 02 og innrétta þar þrjár íbúðir og til að
byggja einbýlishús á tveimur hæðum, mhl. 03 á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti. Erindi fylgir umsögn
Minjastofnunar Íslands dags. 19. ágúst og 16. desember 2024 og umsagnir skipulagsfulltrúa dags.
10. apríl 2025 og 4. apríl 2024. Erindið var samþykkt á fundi byggingarfulltrúa Reykjavíkur 27. maí
2025.
Ákvörðun byggingarfulltrúa frá 27. maí 2025 um samþykkt byggingaráforma er afturkölluð, sbr. 2.
tl. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þar sem uppgefnar stærðir mhl. 02 í samþykktum
aðaluppdráttum eru ekki í samræmi við raunstærð byggingarinnar.