Fundargerð 505
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 328
Annað
Fyrirspurn
Lagðar fram fundargerðir Sorpu bs. , dags. 30. september 2024, 2. október, 2024 og 18. október 2024 ásamt fylgigögnum. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Fundargerð Sorpu 30. sept. Liður 1. Stjórn felur framkvæmdastjóra, í samræmi við fjárhagsáætlun, að flytja rekstur gashreinsistöðvar SORPU yfir í einkahlutafélagið Metan ehf. sem er í 100% eigu SORPU bs. Fulltrúa Flokks fólksins finnst athyglisvert að það þyki sjálfsagt að SORPA flytji rekstur gashreinsistöðvar SORPU yfir í einkahlutafélagið Metan ehf., sem er þó í 100% eigu SORPU bs. Ekki er séð hvaða hagræðing hlýst af þessari aðgerð. Það mætti frekar álykta að þetta kalli á meiri yfirbyggingu. Liður 3: Ekki er annað að sjá en stefnt sé að hátækni sorpbrennslu á Helguvíkursvæðinu. Hvernig var þessi ákvörðun um staðsetningu tekin og var hún vel ígrunduð? Þar væru meiri möguleikar á að nýta varma og orku sem myndast í brennslunni ef brennslan væri nær höfuðborgarsvæðinu, t.d á Álfsnesi. Flokkur fólksins hefur áður bókað um þessi mál. Hátæknisorpbrennsla á Sjálandi í Danmörku er nálægt miðborg Kaupmannahafnar til að auðvelt sé að nýta afurðir sorpbrennslunnar. Þessi staðsetning sýnir að slík brennsla hefur lítil áhrif á nærumhverfið . Út að Helguvík er miklu lengra að aka með sorp frá Reykjavík en á Álfsnes. Það eykur kolefnissporið sem alltaf er verið að berjast gegn.