Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 8. júlí 2024 ásamt kæru nr. 72/2024, dags. 7. júlí 2024, þar sem kærð er sú ákvörðun um að breyta bílastæðum við íbúðablokk í Stórholti í safnstæði fyrir leigubíla. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 7. ágúst 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 1. október 2024. úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.