Fálkaklettur í landi Mógilsár Kjalarnesi - Framkvæmdaleyfi - Klettastígur (Via ferrata)
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 973
11. júlí, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Fjallafélagsins, dags. 8. júlí 2024, um framkvæmdaleyfi til að koma fyrir klettastíg (Via ferrata) við Fálkaklett í Búahömrum í landi Mógilsár í Esju. Framkvæmdin felst í að lagðir verða stálvírar og þrep upp klettana auk hengibrúar á leiðinni. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. júlí 2024.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. júlí 2024. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.
Svar