Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Braga Baldurssonar, dags. 27. júní 2024, um breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis vegna lóðarinnar nr. 23. við Nökkvavog sem felst í að stækka lóðina inn á lóð nr. 172 við Langholtsveg. Um er að ræða lóðarskika sem er á milli lóðanna að Nökkvavogi 23 og Langholtsvegi 174 þar sem innkeyrsla er sýnd inn á lóð að Langholtsvegi 172 á gildandi deiliskipulagi. Einnig er lögð fram yfirlitsmynd þar sem svæði er merkt.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.