Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 10. maí 2024 ásamt kæru nr. 54/2024, dags. 10. maí 2024, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur að kærendum, þinglýstum eigendum að Laugarásvegi 63, sé gert að fjarlægja skjólvegg við lóðarmörk Laugarásvegar 61 að viðlögðum dagsektum. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 23. maí 2024. Jafnframt er lagður fram bráðabirgðaúrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 24. maí 2024. Úrskurðarorð: Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 23. apríl 20204 um að kærendum bæri að fjarlægja skjólvegg við lóðarmörk Laugarásvegar 61 innan 14 daga að viðlögðum dagssektum að fjárhæð kr. 25.000.
Þá er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. júní 2024. úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 23. apríl 2024 um að krefjast þess að kærendur fjarlægi skjólvegg við lóðarmörk Laugarásvegar 61. Að öðru leyti er máli þessu vísað frá úrskurðarnefndinni.