Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 335
Annað
Fyrirspurn
- Kl: 09:18 tekur Brynjar Þór Jónasson sæti á fundinum - Kl: 0923 tekur Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir sæti á fundinum - Kl: 09:23 tekur Sunna Stefánsdóttir sæti á fundinum Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins þakka fyrir góða kynningu á vinnu vegna tillögu flokksins frá 8. maí 2024 um að fallvörn verði sett upp meðfram lágum bryggjukanti við Naustabryggju í því skyni að draga úr slysahættu þar. Þarna hafa orðið slys, þar af a.m.k. eitt alvarlegt. Hvatt er til þess að ráðist verði í umrædda framkvæmd sem fyrst. Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: Fulltrúi Framsóknar í umhverfis-og skipulagsráði fagnar löngu tímabærum og nauðsynlegum úrbótum á bryggjunni í Bryggjuhverfinu. Fráfarandi íbúaráð Grafarvogs margítrekaði nauðsyn þess að koma upp fallvörnum á bryggjunni. Íbúasamtökin í Bryggjuhverfinu leituðu til íbúaráðs sem fór strax og kynnti sér aðstæður sem voru með öllu óásættanlegar, engar fallvarnir og mikil slysahætta. Því sendi ráðið ítrekað frá sér óskir um að brugðist yrði við, m.a. með því að sýna ýmsar útgáfur af fallvörnum og fá fulltrúa Framsóknar í umhverfis- og skipulagsráði, á staðinn. Hann kynnti sér aðstæður og ræddi við fulltrúa íbúasamtakanna. Fulltrúi Framsóknarflokksins kynnti síðan málið og fylgdi því eftir í umhverfis- og skipulagsráði þar sem það fékk þessa umfjöllun sem er að skila þessum tillögum.