Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 322
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um vinnu að stefnu um tjarnir í Reykjavík, sbr. 28. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 24. apríl 2024. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 24. september 2024. Vísað inn í endurskoðun stefnu um líffræðilegan fjölbreytileika sem hefst árið 2025. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Flokkur fólksins lagði til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að láta vinna stefnu um tjarnir Reykjavíkur. Lagt var til að skipa starfshóp sem vinnur að stefnumörkun þar sem m.a. verður fjallað um hreinsun og þrif tjarna og hvernig búa megi fuglum öryggi og frið frá köttum t.d. með gerð hólma í tjörnum. Í umsögn um tillöguna er talað um aðra stefnu, stefnu um líffræðilega fjölbreytni og í aðgerðaáætlun með þeirri stefnu sé m.a. fjallað um settjarnir og aðrar ofanvatnslausnir. Segir í umsögn að þau atriði sem hér eru nefnd hjá fulltrúa Flokks fólksins, umhirða í kringum tjarnir og gerð hólma eigi vel heima í aðgerðaráætluninni og ætti því að vísa henni inn í vinnu við endurskoðun stefnunnar og aðgerðaáætlunarinnar. Sú finna mun hefjast á árinu 2025. Með þessu telur fulltrúi Flokks fólksins að verið sé að drepa málinu á dreif og tefja. Það er aðallega tvennt sem borgarfulltrúi Flokks fólksins telur að leggja þurfi áherslu á og það er umhirða í kringum tjarnir annars vegar og gerð hólma í tjörnum til að mynda friðland fyrir fugla hins vegar. Í þeim fjölmörgu litlu tjörnum sem eru til og stendur til að gera mætti vel byggja hólma með litlum tilkostnaði.