Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Elísabetar Rúnarsdóttur f.h. Vegagerðarinnar, dags. 22. apríl 2024, ásamt bréfi Vegagerðarinnar, dags. 19. apríl 2024, um framkvæmdaleyfi vegna vinnu við landfyllingar vegna brúargerðar yfir Fossvog. Einnig lagt fram teikningasett Eflu, dags. í apríl 2024, umsögn Hafrannsóknastofnunar, dags. 31. janúar 2024, umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 15. janúar 2024, umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands, dags. 24. janúar 2024, umsögn Umhverfisstofnunar, dags. 16. janúar 2024 og ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu, dags. 30. apríl 2020. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. maí 2024.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. maí 2024. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis.Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.