Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 18. mars 2024, um framkvæmdaleyfi fyrir 4. áfanga Hlemms og nágrennis vegna endurnýjunar og tengingar götukafla Laugavegs og Rauðarárstígs, samkvæmt teikningasetti, dags. í mars 2024. Einnig er lögð fram útboðs- og verklýsing, dags. í mars 2024. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. mars 2024.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 21. mars 2024. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.3 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.