Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 341
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að setja viðgerðir á leikskólum í forgang, sbr. 35 liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 13. mars 2024. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 28. apríl 2025.
Svar

Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins greiða atkvæði gegn frávísun málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins:
Fulltrúar samstarfsflokkanna eru sammála um þessa áherslu og beina þeim tilmælum til skrifstofu framkvæmda og viðhalds að horfa áfram til þessa þegar kemur að viðhaldi. Í því ljósi að til staðar er verklag þar sem forgangsröðun viðhaldsverkefna er ákveðin, og þar sem áhersla er lögð á viðhald og endurnýjun leikskóla- og grunnskólabygginga, er réttast að vísa þessari tillögu frá að sinni í ljós þess sem fram kemur í svari með tillögunni.