Háskóli Íslands - deiliskipulag vestan Suðurgötu - breyting á deiliskipulagi - USK23080247 Lögð fram umsókn Fasteigna Háskóla Íslands ehf., dags. 24. mars 2023, ásamt bréfi THG arkitekta, dags. 19. jú
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 930
31. ágúst, 2023
Annað
Fyrirspurn
Háskóli Íslands - deiliskipulag vestan Suðurgötu - breyting á deiliskipulagi - USK23080247 Lögð fram umsókn Fasteigna Háskóla Íslands ehf., dags. 24. mars 2023, ásamt bréfi THG arkitekta, dags. 19. júní 2023, um breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, deiliskipulag vestan Suðurgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmarkaður er reitur fyrir óupphitað, hálfopið reiðhjólaskýli á bílastæði norðaustan við Tæknigarð Háskólans, samkvæmt uppdr. THG arkitekta, dags. 10. mars 2023. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. a. liður 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 1224/2022, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022, áður en breytingin er auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.