Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 378
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um aukinn kraft í sorphirðu Reykjavíkur, sbr. 31. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 16. ágúst 2023. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofa umhverfisgæða, dags. 22. apríl 2026. Tillagan felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna gegn atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.