Háaleitisbraut 175 - stöðuleyfi
Háaleitisbraut 175 - stöðuleyfi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1211
16. júní, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Spurt er hvort veitt verði tímabundið stöðuleyfi fyrir gám með háþrýstikúti ásamt tengingum við núverandi hús, við austurhlið E-álmu spítalans í Fossvogi. Um er að ræða tímabundna lausn á staðsetningu á mjög sérhæfðum tækjabúnaði sem skylt er að hafa til taks í landinu m.a. vegna djúpsjávarslysa og ýmissa læknisfræðilegra meðferða. Núverandi kútur er úr sér genginn og við endurnýjun hans var horft til þess að kaupa kút sem hentar til fyrirsjánanlegrar framtíðar. Að lokinni byggingu nýs Landspítala við Hringbraut verður kúturinn fluttur þangað á varanlegan stað. Utan um kútinn er sérsmíðaður gámur sem hann er fluttur í. Óskað er eftir að hann fái að standa á forsteyptum sökkuleiningum utan við húsvegg E-álmu spítalans þar til kúturinn verður fluttur í varanlegt húsnæði í nýjum spítala við Hringbraut. Gámurinn verður síðan tengdur núverandi húsnæði með léttum tengingum úr timbri. Ytri klæðningar tengibygginga verða úr málmklæðningum, þakpappi á þaki og innveggir klæddir gipsi. Heildarstærð gámsins og tengibyggingar er 51,1 m2 og 131,1 m3.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.